bloggsvæði Stebbu og Labba
vinnufélagar
06.07.2007 20:44:25 / sbak

T.V.

Nú er enn ein vikan senn á enda. Sjónvarps efni ekki mikið til að hrópa húrra yfir. Hef lítið sem ekkert horft á tv.

Þá aðallega til að fylgjast með fréttum. Annað hefur ekki verið gáfulegt. Mér finnst með ólíkindum hvað sjónvarpsdagskrá á þessum tv stöðvum er léleg dag eftir dag, kvöld eftir kvöld.

Ekki mikið að gera í vinnunni í dag. Rólegur dagur. Þá líður hann ekki fljótt. Mikið hangið á netinu.

Ég byrja næstu viku frá 08.00 - 16.00 í stað 08.00 - 12.30 eins og það hefur verið frá því ég byrjaði. Það er hugsanlega sökum sumfarleyfis, og er það bara hið besta mál. Mér skilst það verið allavega næstu hálfi mánuður sem ég vinn til 16.00.

Svo kemur þetta bara allt í ljós.

Ég er í því að taka myndir og leika mér með nýju elskuna mína sem mer Canon eos 400d. Frábær gripur alveg hreint.

Stebba er að fara austur á Seyðis þann 18 og vera eitthvað yfir helgi. Ég kemst ekki, þarf að vinna. Hún ætlar á Lunga. (sjá www.lunga.is). Það verður vonandi bara gaman. :$

Árni minn til hamingju með daginn elsku kallinn minn, ég samhryggist þér innilega að þú nálgast ..... óðum.


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.07.2007 20:40:16 / sbak

Gott veður á klakanum.

 

Jæja þá er maður nú kominn heim frá Spáni. Lítið gerst síðan þá. Fórum beint í vinnu daginn eftir lúin og þreytt.

Á Spáni var mikið brallað farið í útsýnis ferðir og heimsótt þorp og margt brallað. Labbi datt úr stólnum og fótbrotnaði eða eins og læknirinn sagði að það hafi flísast upp úr ristinn og klæddi mig í sokk.

Ég náttúrulega fór EKKI beint til læknis heldur fór til íslands og var þar í heila viku þangað til ég fór til læknis og þar var ég myndaður.

Annars bara allt í gúddi. Byrjaður í nýju vinnunni og það er ok. Brjálað að gera, endalaust skammaður og bent á klúðríð sem ég gerði deginum áður.

Stebba er að fara austur á Lunga sjá www.lunga.is sem er hátið sem er haldin árlega á Seyðis. Ég ætla vera í Reykjavík á meðan og passa húsið :)

Reyndar á ég ekkert frí svo ég þarf að vera hér og passa kofann.

Kynntums frábæru fólki á Spáni sem væri gaman að hitta aftur.  Ég keypti mér myndavél sem ég er ÁSTFANGIN AF sem heitir canon eos 400d. Mikið gaman að taka myndir á þessa græju.

Fórum í Krikann í dag í blíðunni og sóluðum okkur þar. Stebba hefur verið á kv. vakt þessa vikuna vegna sumarleyfa. Allir í sumarfríi nema ég.

Ætlum kanski að kíka í sveitina um helgina, í bústað og á Selfoss til systir Ó. B. K.


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.06.2007 16:40:42 / sbak

HEIMFERDIN

 

Nú er komid ad heimferdinni og Stebba er komin med kvef.

 see you later


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.06.2007 20:30:02 / sbak

Sidasti dagurinn á spáni ad kveldi kominn.

Jaeja tá er fríid búid ad tessu sinni. Komum heim annad kveld.

Sl. laugardag fórum vid á laugaveginn í verslunar leidangur og sukkudum feitt. Til daemis fékk Stebba sér TATTTOO..... Belive it or not!

Og ég lyklakyppur.

Sunnudagur var afsloppun, adallega sokum tess ad allt hér í kring er lokad og bara haegt ad vera í sólbadi.

Mánudag voknudum vid kl. 9.30 og fórum í ferd til Guatalest sem er listamannatorp med mikilli sogu. Tar skodudum vid medal annars gamalt fangelsi tar sem fangar voru hlekkjadir vid veggina og píndir.

Komum heim um 17 leitid tá fórum vid ad gera okkur klár fyrir afmaelid hennar Stebbu. Vid fórum út ad borda á ToPa gigio tar var í bodi íslenskur matsedill. Ég Labbi fékk mér raekjukokteil í forrétt og nautafille í adal og svo appelsínu ís í eftir rétt og kláradi tetta med kaffi í restina.

Afmaelis barni (Stebba) fékk sér tómatsúpu í forrétt og kjúklingabringu í skinku og rjómalogud sósa og endadi á ís.

Svo var farid heim á hótel og tar hittum vid félaga okkar sem vid hofum verid med hér og var stímt beint á barinn og keyptar margar marglitadar konnur af vokva. Adallega áfengum.

Í dag fórum vid í tívoli og tar fórum vid í rússibana og frjálst fall og Labbi keypti sér lyklakippur :)

Sjáumst á fimtudag elskurnar.


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.06.2007 11:54:45 / sbak

Blodrur og brunarustir..........

Well well. Nú er Labbi haettur ad sóla sig sokum bruna og bladra útum allan líkamann. Vill komast heim á klakann sinn.

:)

Annars er búid ad vera frábaert á Spáni. Búin ad kynnast frábaeru fólki hér sem kom í sama flugi og vid hingad út.  Búin ad hanga mikid med teim og bralla. Stebba er í tví ad sukka og ég raed ekkert vid hana.

En erum nú einu sinni á Spáni :)

Erum ad fara í Guadalest á mánudaginn afmaelis daginn hennar Stebbu. Ég (Labbi) hékk inni allan daginn í gaer sokum brunarústa.

Tridjudag erum vid ad fara í verslunar flipp til ad eyda evrunum okkar. Tad er nú ekki snidugt ad koma med alla tessa peninga aftur heim. Erum búin ad vera duglega ad fara út ad borda.

Belive it or not.... Stebba af ollum fór á kínverskan veitinga stad í gaerkveldi og smakkadi djúpsteiktar raekjur og smokkfisk og fíladi tad í taetlur. Fór slefandi heim. Vildi taka med sér heim.

Sátum svo í gaerkveldi og sotrudum bjór og annad áfengi sem ég kann ekki nofnin á. Tia eitthvad og sang..... eitthvad

En ég var bara eins og pínulitlu bornin og drakk mitt kók. Aetla samt í kvold ad panta mér eitthvad sem er flott á litinn og í odruvísi glasi svona flottu glasi med rori. En óáfengt.

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

21.06.2007 11:17:09 / sbak

Mánudagur Tridjudagur og Midvikud

Jaeja nú er ad setjast nidur og skrá smá blogg.

Vid fórum á sl. mánudag í svaka jeppasafari ferd. Loggdum af stad kl. 9 og vorum komin aftur til baka um 19.

Tarna voru med okkur í ferd Belgar og glaerir Englendingar (Tunnir) Teir byrjudu ferdina á ad aela og eala sokum tynku.  Annars var ferdin alveg frábaer. Gaedinn var alveg frábaer. Taladi íslensku. Alveg frábaer.

Fórum í smá verslunar leidangur í fyrradag og lobbudum strondina, eyddum einhverjum smá pening.

Veit ekki hvort ég á ad segja ykkur frá gaer deginum. Tví hann var bruni bruni bruni. Lágum í 5 tíma í sólbadi og urdum ad steik. Labbababb vel steiktur á bakinu og Stebba hondum og fótum. Tannig ad nú hofum vid tekid ákvordum ad hvíla okkur á sólinni í dag og morgun.

 Stebba svaf med flísteppi í gaer sokum kulda, belive it or not!

Kossar og knús heim í kuldann.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.06.2007 21:37:21 / sbak

Benidorm.

Nú er ad  blogga smá. Búid ad vera ógisslega gaman. Búin ad vera í sólbadi og kallinn ýkt duglegur ad bera á hvítu lappirnar sínar sem hann er svo skíthraeddur um. Komum á hotelid um 21 og beint á herbergi med dótid. Svo fórum vid ad snaeda. Beint á barinn og upp í baeli. " Hanna mín  vid fundum stadinn okkar á Benidorm eftir mikla leit og mikla leit og ad villast med straetoenn hann var lokadur :( Löbbudum um gamla baeinn á Benidorm.

Sl. nótt var labbinn mikid veikur og aeldi og spúadi um allt hitti stundum klósettid en ekki alltaf. fórum í kvold til Altea og thar var rosa gaman og flott gedveikt útsýni og fullt af flottum veitingastodum og Búúdum hefdi allveg getad tapad mér í theim.

Hótelìd er mjog flott en herbergi er svona la la fyrir hjólastóla og svo er rosalega mikid af fjolskyldu fólki og ellismellum allt búid kl 24.00 thá eiga allir ad fara ad sofa. Vid erum ad fara svo í jeppa safarí á mánudaginn og okkur hlakkar gedveikt til. Manstu Hanna thegar vid fórum árid 2000 vid komum bara smá skítugar heim ekki mikid svo á eftir ad gerast helling hjá okkur segjum frá thví seinna.

Thegar v`d vorum á Benidorm í gaer thar sem og Hanna vorum fyrir sjo árum thá fékk svona gedveikt flass back thar leid mér vel ég gat synt labba slatta og ratadi helling thar ég af ollum thad er allveg pottthétt ad ég á eftir ad plata labba aftur thangad :). Jaeja nú er nóg komid í bili erum ad fara uppá hótelherbergi ad sofa vakna snemma í fyrramálid og fara í sólbad og gera eitthvad snidugt kossar og knús kv Benidorm.


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 22:13:35 / sbak

Þri 1. maí ammælis dagur systir minnar.

 

 Jæja nú kemur smá blogg frá kallinum. 1.Maí var frábært dagur eins og dagurinn í dag. Þetta byrjaði allt með rólegheitum við að vakna og solls.. eftir jamm með Hölum og fleira góðu fólki.

Svo var drifið sig austur fyrir fjall og í 4tugs afmæli hjá Ólu Biddu systir og þar vorum við í kökum og kaffi til að ganga 18 þá var brunað í bæinn. Óvænt ánægja að þarna voru mamma og pabbi mætt. Birtust hjá systir 30 apr og hringdi fyrir utan og heimtuðu kaffi. Stebba fór að skúra og ég og Sindri frændi sem býr í Danmark fórum að horfa á LIVERPOOL – Chelsea.

 Það var vægast sagt háspenna lífshætta. Hjartslátturinn í 300 og blóðþrýstingurinn upp úr öllu veldi.

Ég var farinn að ganga um golf hækjulaus nota bene… var hreinlega að fríka út. Vissi það reyndar að Reina sem var hetja þessa leiks myndi verja allavega 1 spyrnu. Fór svo heim eftir leikinn og sofnaði ekki fyrr en 04.00 þessa nótt sökum kaffidrykkju og upptjúnnings :) yfir fótbolta.

 Svo var leikur í dag, Man utd og AC Milan. Sá reyndar ekki fyrri hálfleik nema síðustu 10 mín og má með sanni segja að AC voru nú betri Rooney sást ekki Giggs gat ekkert Ronaldo oft verið betri. Og svo má lengi telja. Má NÆSTUM segja að þetta hafi verið leikur kattarins að músinni. Reyndar áttu Manjú spretti sem reyndar komu of seint.

 S.s. úrslitaleikurinn í Aþenu LIVERPOOL v AC Milan. Þann 23 maí. Allir að taka frá daginn. Ég er búinn aðððíííí


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.03.2007 22:33:51 / sbak

Fjölskylduhittingur!

 

 

Á þriðjudagskvöld síðastliðið kom móðir mín til Reykjavíkur. Var að fara til Danmerkur.

Hún gisti hjá okkur í  2 daga. Í gærkveldi lagði hún undir sig íbúðina og eldaði mat og bauð 2 systrum mínum og fjsk sem voru og eru stödd hér á höfuðborgarsvæðinu.

Systir mín sem býr á Selfossi brunaði í bæinn með sína fjölskyldu og svo var ein systir sem býr á Egs hér í bænum  og var á fundi í Háskólanum í dag, brunaði svo austur aftur í kvöld.

Klemens fræ kom líka. Þetta var heljarinnar geim og mikið fjör.

 Lyklakippum var raðað í öll horn á spjaldinu, hefur aldrei verið gert áður. Búinn að komast að því að lyklakippurnar mínar 600 eru ansi góð barnapía. Börn heillast yfirleitt af þessu dóti mínu og eru endalaust að leika sér af þessu. Eins og ég segi góð barnapía.

Stebba var sett í að sækja og þeytast með liðið (þessa austfirðinga) út og suður, í gær og dag.

 

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.02.2007 22:49:00 / sbak

General

Jæja þá er það einn föstudagurinn í viðbót. Generalprufa í kvöld hjá Halaleikhópnum og Stebba að leika.

www.halaleikopurinn.is, setur upp sýininguna “ Batnandi maður” Eftir Ármann Guðmundsson.

Ég hangi hér heima, búinn að vera heila viku og geri ekkert annað en að hanga.

Sjónvarpsdagskráin ekki upp á marga fiska. Og það eru margar stöðvar. Óþolandi þegar svona er.

Svo er víst Frumsýning á morgun kl. 20:30 og ég fer á hana og horfi á leikritið og svo á eitthvert skrall á eftir….

Eins og ég segi, búinn að hanga heima alla vikuna. Ekkert farið í vinnu sökum veikinda. Ömurlegt kvef og skítur í hálsinum. Svona einhverskonar whyski voice.

Mútta er að koma suður,  til að fara til DK til hennar Maju. Sindri aftur farinn á spítala. Kall greyjið, líður ekkert of vel. Mér skilst að Jóhann Hlíðar hafi farið út til hans í gær og ætli að vera hjá honum einhvern tíma.

En af mér… jú ég hef verið að sækja um vinnu svona hér og þar í gegnum www.mbl.is  aðallega. Bíð alltaf eftir þessum svörum sem allir lofa.  Fæ engine, ENNÞÁ.

Ætla að segja upp um mánaðarmótin næstu, ákveðinn.

Við skötuhjúin ætlum austur um páskana og ætlum að taka Láru Rut með okkur. Gott að komast aðeins úr stressinum í borginni og hvíla okkur í sveita sælunni og fá páska egg J

 

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 15:17:14 / sbak

Helgin, Halinn og við hin....

Þá er að byrja ný vinnu vika og allt á fullt. Helgin var góð var að mála alla helgina og fer aftur í kvöld.

Halaleikhópurinn era ð setja allt á fullt aftur og sýnir nú ( Batnandi maður) eftir Ármann Guðmundsson.

Frábært leikrit.

Annars sit ég nú heima í byrjun vikunnar og er með kvefpest og svaf illa sl. Nótt.

Ætla að ná þessu úr mér og mæta svo í vinnu.

Allt gott er að frétta og Stebba mín á fullu í æfingum í þessu leikrtiti. Ég er ekki með núna. Er bara í leikmyndinni (mála)

Eins og margir ykka vita, þá elska ég að  mála og gæti hreinlega lifað fyrir það að mála. Er búinn að vera sækja um vinnu svona hér og þar.. aðallega þar J

Sótti síðast um hjá Ferðaþj fatlaðra. Bíð eftir að Halldór hringji í mig. Eins og ég segi þá hangi ég bara heima í dag og sé svo til þegar líða tekur á vikuna hvernig ég verð. Kanski á morgun eða hinn. Svaf lítið sem alls ekki neitt í nótt. Hlakka til að klára að mála í kvöld eftir æfingu.

Love jú oll……


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 22:42:51 / sbak

Smá blogg frá karlinum fyrir svefninn.

 

 



Byrjaði daginn á að sofa yfir mig. Hundskaðist í vinnu kl. 9 og þegar þanga var komið beið ekki betra.

Þar sem allt er í snjó,  og símnn hefur ekki efni á að láta moka plön fyrir sig varð ég að bíða úti í 40 mínútur á meðan verið var að moka leið fyrir mig svo ég kæmist inn.

Þar fyrir utan lagði einhver stúlka í stæðið mitt (fatlað stæði) og hún fannst ekki fyrr en löngu seinna, þannig að ég beið líka eftir að hún fyndist svo hún myndi færa bílinn sinn.

Ekta mánudagur.

Svo þegar ég fór í mat þá tók ekki betra við en að gönguleiðin var ófær og ég sat fastur í skafli.

Lét ég toga mig til baka og fór inn og fékk mér banana. Dagurinn fyrir utan þetta var erfiður í vinnunni, mikil kaffidrykkja og erfið mál.

Við fengum nýjan tölvu skáp sem Ingimar sonur Ödda og Ásu hjálpaði mér að setja upp í kvöld. Það tók 1 og hálfann tíma. Hann varð að fara upp sökum þess að ég lét hinn fara niður í Hala, vantaði skrifborð skilst mér. Vona bara að það sé nothæft. Svo kom Gústi og kíkti á tölvuna hjá mér einhver stillingar atriði. S.s. allt í gúddí.

 

 



Kv AK og SBB


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 14:38:26 / sbak

Smá könnun

2. Erum við vinir?
3. Ef þú þekktir mig ekki, og mættir mér eitthversstaðar, myndirðu halda að ég væri á föstu eða lausu?
4. Hversu vel telurðu þig þekkja mig?
5. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
6. Lýstu mér í einu orði.
7. Hvað er mest einkennandi við mig?
8. Hvaða búðir elska ég að fara í?
9. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
10. Þegar þú hugsar til mín hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í hug?
11. Hvernig stelpa er ég, og í hvaða týpu flokkarðu mig?
12. Hvað minnir þig á mig?
13. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
14. Hversu vel þekkiru mig?
15. Hefur þig einhvern tímann langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
16. Ætlarðu að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?
17. Lokaorð til mín?

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.01.2007 20:14:22 / sbak

Fyrsta bloggið Stebbu á árinu :)

Nú er ég (stebba) byrjuð á fullu í Halanum.Ármann raðaði í hlutverk á mánudaginn fyrir viku síðan og fékk ég hlutverk sem Emelía og á örugglega eftir að vera bara spennandi að

leika það.Æfingatímabilið núna byrjar mjög rólega og það er svolítið skrítið að vera komin heim til sín kl níu en ekki að ganga hálftólf eins og það er búið að vera síðustu ár.Ég og Labbi fórum í afmæli til Gunsó í gær sá gamli var 55 ára og var það bara mjög fínt.Ég vaknaði ekki fyrr en kl eitt í dag þvílík leti í manni og svo um þrjú leyti þá hringdi ég í Gunsó og sagði honum að hunska sér á fætur því ég myndi verða komin til hans kl 15.45 að sækja hann því að við ættum að mæta á æfingu kl 16.00 og gékk það bara mjög vel nema það að sumir voru svolítið þunnir.


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.01.2007 22:13:28 / sbak

UPPGJÖR JÓLA OG ÁRAMÓTA!

 

 



 

 



Jæja nú er víst kominn tími til að gera upp jól og áramót.

 

 



Jólin voru yndisleg í faðmi Stebbu og hennar fjsk. Við eyddum aðfangadegi í Mosó hjá foreldrum Stebbu. Þar áttum við yndislegt kvöld, borðuðum góðan mat og drukkum jólaöl og ýmsilegt annað eins og t.d. kók. Enduðum aðfangadagskvöld hjá Ólöfu mágkonu J og hennar fjsk. Þar Knúsuðust allir og chilluðu langt fram eftir kveldi. Þar var meira en jólaöl í boði, aðeins sterkaraJ

 

 



Þetta voru fyrstu jólin sem ég eyði ekki innan veggja fjsk minnar.  Hjá fjsk Stebbu eru ekki pakkar teknir upp strax heldur fær viðkomandi alla sína pakka og tekur þá upp svo. Ansi skemmtileg tilbreyting.

Nema það að fyrsti pakkinn sem ég fékk var risa stór. Innpökkuð sæng frá tengdó. Alveg geggjuð.

Og ég hélt á henni lengi vel og sá ekkert, vissi ekkert hvar ég ætti að leggja hana frá mér. Svo komu litlu pakkarnir.

 

 



Jóladagur var enn einn át dagur í faðmi tengdó í Barrholtinu í Mosó. Þennan dag fórum við í mat og þar var að vanda etið mikið og gott.

Annan dag jóla fórum við svo á Selfoss til Ólaf systir minnar (ansi skemmtileg tilviljun að við eigum bæði systir sem heitir Ólöf) og kláruðum jólin þar. Komum við í breiðholtinu hjá Stebbu frænku hennar Stebbu og kysstum hana til hamingju með afmælið.

 

 



Áttum góða stund á Selfossi með Ólöfu Klem og fjsk.

 

 



Föstudag 29 fórum við í mat til Stebbu frænku hennar Stebbu J. Þar var öll ættin (næstum ættarmót) í mat. Svaka fjör, litlir sem stórir.

 

 



Við skötuhjúin fórum svo í sínhvora áttina á laugardag ég fór að horfa á lyftingamót og Stebba fór með Önnu Guðrúnu að eyða peningum.

Kíktum svo í kaffi til Báru á gamlársdag í smá kaffi og knús.

 

 



Kláruðum svo árið hjá minnar heittelskuðu mágkonu, sem er yndisleg og hennar fjsk. Úff, talandi um að vera VÆMINN.

Þarna voru tendó og Bjössi bróðir hennar Stebbu og hans kona.  Þar var etinn rækju kokteill og kalkúnn alveg hreint ógeðslega stór og hreint út sagt sjúklega góður, tala nú ekki um rækjurnar J

 

 



Svo var horft á skaupið sem ég reyndar er ekki alveg búinn að meðtaka. Náði því nú ekki alveg, en hlóg geðveigt þegar Jón Gnarr talaði við kvk í hjólastólnum.

Var ýkt fyndið.

 

 



 Nú var komið að því að skjóta upp gamla árinu (2006) sem var nú bara alveg ágætt. Ég breytti miklu í mínu lífi til betri vega. Er að læra að búa, með konunni sem ég elska. Hef aldrei verið í sambúð þannig að ég kann þetta barasta ekki neitt.

En eftir árs sambúð er eitthvað af þessu farið að lærast.

 

 



Skothríðin á gamlárs var gífurleg. Ég fékk netta reykeytrun. Við lentum í ekta austfjarðar þoku þar sem var logn í Reykjavík, (merkilegt nokk) ég var skotinn niður eða það reynt J fékk eitthvað fljúgandi upp til mín.

Vorum hjá Ólöfu og Gumma til 03 fórum þá heim hittum þar Önnu Guðrúnu og brunuðum svo í party til Hönnu og Þrastar. Þar var dágóður hópur af fólki, svaka fjör og allir hressir. Við vorum að fara þaðan um 07 morguninn eftir. Þ.e.a.s nýársdagsmorgun.

 

 



Svo var nýársdagurinn bara tekinn eins og á að gera (leti og þynka fyrir þá sem drekka)

 

 



Ég Labbi naut mín í tætlur yfir jól og áramót.  


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Klukkan